Nýr hljómdiskur Gísla Þórs kominn út

Út er kominn hljómdiskurinn "Bláar raddir". Diskurinn inniheldur 10 lög Gísla Þórs Ólafssonar við ljóð Geirlaugs Magnússonar úr bók Geirlaugs, "Þrítengt" sem kom út árið 1996.

Upptökur fóru fram í Stúdíó Benmen á Sauðárkróki og var upptökustjórn í höndum Sigfúsar Arnars Benediktssonar. Málverk á umslagi gerði Margrét Nilsdóttir.

Bláar raddir er önnur sólóskífa Gísla Þórs en hann hefur áður gefið út geisladiskinn Næturgárun undir flytjandanafninu Gillon og 5 ljóðabækur í eigin nafni.

Geirlaugur Magnússon gaf út 17 ljóðabækur og 3 þýðingar og kom hans fyrsta ljóðabók Annaðhvort eða út árið 1974.

Hér er lagið Hringekjan

Útgáfan er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra, Kaupfélagi Skagfirðinga og Sparisjóði Skagafjarðar.

Fleiri fréttir