Nýr leigutaki Laxár á Ásum
Veiðifélag Láxár á Ásum hefur samið við nýjan leigutaka, Salmon Tails ehf. og mun sá samningur gilda frá árinu 2012 til 2017.
Laxá á Ásum, sem er skammt utan Blönduóss, hefur löngum verið vinsæl til laxveiða og hefur m.a. söngvarinn Eric Clapton vanið þar komur sínar.
Samkvæmt heimildum mbl.is sérhæfir félagið Salmon Tails ehf. sig í leigu á laxveiðiréttindum og endursölu þeirra til veiðimanna en félagið er einnig með í leigu Mýrarkvísl í Reykjahverfi, skammt frá Húsavík. Eigendur Salmon Tails eru Eiríkur Þorláksson hrl., Elías Blöndal lögfræðingur og Arnars Jóns Agnarssonar veiðimaður og leiðsögumaður.
Til stendur að reisa nýtt veiðihús við ána fyrir sumarið 2012, en núverandi veiðihús árinnar er komið til ára sinna.