Nýr og fjölbreyttur námsvísir
Farskólinn á Norðurlandi vestra hefur nú dreift Námsvísinum til íbúa svæðisins og býður upp á fjölbreytt og skemmtileg námskeið á vorönn 2012. Flest námskeiðin eru í boði um allt Norðurland vestra.
Á haustönn 2011 voru haldin 38 námskeið á vegum Farskólans þar sem alls 429 manns tóku þátt og nemendastundir urðu alls 8785.
Í inngangsorðum Bryndísar Þráinsdóttur framkvæmdastjóra skólans segir að fræðsluverkefnið Eflum byggð haldi áfram í Húnaþingi vestra en þar verða í boði námskeið í bókhaldi og átthagafræði á vorönninni.
HÉR er hægt að líta hinn glæsilega Námsvísi á rafrænu formi.