Nýr rekstraraðili á Laxá á Ásum árið 2017

Sturla Birgisson t.v. og Páll Árni Jónsson takast í hendur við undirskrift samningsins. Mynd: Heimir Óskarsson/vatnogveidi.is.
Sturla Birgisson t.v. og Páll Árni Jónsson takast í hendur við undirskrift samningsins. Mynd: Heimir Óskarsson/vatnogveidi.is.

Framundan eru miklar breytingar við Laxá á Ásum, en frá og með sumrinu 2017 verður sala veiðileyfa, markaðssetning og rekstur veiðihússins í höndum Sturlu Birgissonar. Þarna er verið að taka upp fyrirkomulag sem kallað hefur verið Norðurármódelið, þ.e.a.s. leigutakar koma ekki við sögu, heldur sölufulltrúi. Þetta kemur fram á vefnum votnogveidi.is

Það er félagið Salmon tails ehf sem hefur leigt ána síðustu árin, einnig ósasvæðið, kennt við Hólmakvísl og Fremri Laxá sem er milli Laxárvatns og Svínavatns. „Með þessu er ljóst að þegar tíma Salmon tails lýkur á komandi hausti, verður ekki efnt til útboðs. Allt er frágengið með framhaldið,“ segir á vefnum. Páll Árni Jónsson formaður Veiðifélags Laxár á Ásum sagði í samtali við VatnogVeiði.is að stjórnin hefði talið réttast að ganga strax í málin, erfitt væri að leita eftir nýjum aðila við lok vertíðar þegar búið væri að ákveða miklar breytingar.  

„Við erum með þessu að fara í hið svokallaða Norðurármódel sem að við teljum að henti okkur best. Við ræddum við Birnu Konráðsdóttur formann Veiðifélags Norðurár og Einar Sigufússon sölufulltrúa þeirra og niðurstaðan var sú að þetta hefði reynst þeim vel. Þetta var tekið upp í Norðurá á tíma sem að ýmsir veiðileyfasalar höfðu lent í vandræðum og við töldum að með þessu myndi áhættan liggja þar sem henni ber, þ.e.a.s. hjá landeigendum. Gangi vel, þá aukast tekjur, gangi miður þá minnka þær. Þetta áhættuelement hverfur því. Ég vil þó taka fram  að það hefur verið ágætis samvinna milli okkar og Salmon tails síðustu árin, en þeir kusu að halda ekki áfram á þessum nýju forsendum,“ segir Páll Árni á Vatnogveiði.is.                              

Á vefnum kemur fram að Sturla Birgisson sé einn fremsti matreiðslumaður landsins auk þess að vera öflugur veiðimaður og leiðsögumaður. Hann hefur meðal annars leiðsagt ekki ófrægari en Eric Clapton, einmitt í Laxá á Ásum. 

„Samningar við núverandi rekstraraðila renna út á næsta ári og er þeim þökkuð ágæt samvinna. Stjórnin ákvað í framhaldi af þessum breytingum að ganga til samninga við Sturlu Birgisson, matreiðslumeistara og veiðimann, um rekstur á ánni frá 2017-2021. Samningurinn felur í sér að Sturla sér um sölu veiðileyfa, markaðssetningu og rekstur á glæsilegu veiðihúsi árinnar. Húsið var byggt árið 2012 og ætlunin er að stækka og endurbæta það enn frekar til þess að geta veitt veiðimönnum enn betri þjónustu. Þær breytingar verða tilbúnar sumarið 2017. Um er að ræða að fjölga herbergjum um tvö og bæta við aðstöðu starfsfólks. Við erum afskaplega heppnir að fá Sturlu til samstarfs við okkur en með samningnum við hann verður þjónusta við veiðimenn aukin og boðið verður upp á fimm stjörnu þjónustu allan veiðitímann. Þá er átt við morgunmat, hádegismat og dýrindis kvöldmat eins og Sturlu einum er lagið,“ segir Páll um hinn nýja sölustjóra og rekstraraðila Laxár.

Nánari umfjöllun um Laxá á Ásum, veiðisumarið og komandi breytingar leggst í Pál og Sturlu má lesa á vefnum votnogveidi.is.

 

Fleiri fréttir