Nýr ritstjóri tekinn við Feyki

Nýr ritstjóri er nú tekinn til starfa hjá Feyki. Páll Friðriksson hefur starfað sem blaðamaður hjá Feyki síðastliðin þrjú ár og hefur nú tekið við stjórnartaumunum.

„Ég hlakka til að takast á við verkefnið og vonast til að vera í góðu sambandi við lesendur á svæðinu,“ segir Páll aðspurður um nýju stöðuna og bætir við að hann hvetji fólk til að vera duglegt við að hafa samband ef það vill koma einhverju á framfæri.

Guðný Jóhannesdóttir, fráfarandi ritstjóri, hefur nú sest á skólabekk. Páll og aðrir starfsmenn Nýprents vilja þakka Guðnýju fyrir samstarfið og óska henni velfarnaðar í komandi verkefnum.

Fleiri fréttir