Nýr samningur um greiningu og endurhæfingu vegna vefjagigtar

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og  Þraut ehf. hafa gert með sér nýjan samning um þverfaglega greiningu og endurhæfingu fyrir einstaklinga með vefjagigt og tengda sjúkdóma og hefur hann verið staðfestur af heilbrigðisráðherra. Á heimasíðu SÍ segir að samningurinn sé til eins árs og gerður á grundvelli fjárveitinga til verkefnisins á fjárlögum. Samningurinn byggir í grunninn á fyrri samningi milli SÍ og Þrautar, en Þraut hefur frá árinu 2011 veitt einstaklingum með vefjagigt þverfaglega heilbrigðisþjónustu á grundvelli samninga við SÍ.

Á Sjúkra.is kemur fram að á fjárlögum þessa árs sé 15 m.kr. viðbótarfjárveitingu varið til verkefnisins sem verði að hluta nýtt til að innleiða endurhæfingarmeðferð fyrir einstaklinga með væga til meðalslæma sjúkdómsmynd vefjagigtar. Þar sé um að ræða meðferð sem veitt verður samhliða vinnu og eða skóla og meðferðar tími þá lengri en í þeirri endurhæfingarmeðferð sem fyrir er hjá Þraut.

„Jafnframt verður hluti fjárveitingarinnar nýttur til að fjölga þverfaglegum greiningum með það að markmiði að fækka einstaklingum á biðlista eftir þjónustunni. Þá stendur til að nýta hluta viðbótarfjármagnsins til að auka fræðslu til heilsugæslustöðva og almennings um vefjagigtarsjúkdóma. Með samningnum er bókun þess efnis og verður útfærsla á tilögun fræðslunnar og fræðsluefnis unnin nú í byrjun árs 2021.“

Í færslunni segir að með samningnum verði því þjónusta við einstaklinga með vefjagigtarsjúkdóma aukin á fjölþættan hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir