Nýr slökkviliðsstjóri tekinn til starfa

Í upphafi  septembermánaðar tók Hilmar Frímannsson til starfa sem slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Hún. Hilmar sem er vel kunnugur starfi BAH, byrjaði sem slökkviliðsmaður árið 1993 og hefur  starfað sem varaslökkviliðsstjóri frá árinu 2004.

 

Starfssvæði BAH nær til sveitarfélaganna tveggja sem standa sameiginlega að rekstri liðsins en það eru Blönduósbær og Húnavatnshreppur. Liðið hefur einnig skyldur um aðstoð við nærliggjandi sveitarfélögum samkvæmt heimasíðu þeirra.

 

Þann 5.september s.l. var haldið námskeið í eldvörnum og notkun slökkvitækja í Blönduvirkjun þar sem farið var yfir helstu atriði varðandi brunavarnir og forvarnir á vinnustöðum, en einnig var farið í verklegar æfingar í notkun slökkvitækja.

Fleiri fréttir