Nýr stjórnmálaflokkur stofnaður um helgina

Lýðræðisvaktin, nýr stjórnmálaflokkur, varð til um helgina. Samkvæmt fréttatilkynningu frá hinum nýstofnaða flokki eru helstu markmið Lýðræðisvaktarinnar að koma landinu upp úr þeim efnahagslega öldudal sem það er í, lyfta því undan oki sérhagsmuna og tryggja að Alþingi samþykki nýja stjórnarskrá í samræmi við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í haust. 

Á stofnfundinum var stjórn Lýðræðisvaktarinnar kosin sem hér segir:

Vaktstjóri:  Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði

Bakvaktastjóri:  Sigríður Ólafsdóttir, lífefnafræðingur

Aðalritari:  Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, viðskiptafræðingur

Meðstjórnendur:

Rannveig Höskuldsdóttir, verkakona

Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í guðfræði

Árni Stefán Árnason, lögfræðingur og dýravinur

Lýður Árnason, læknir

Lýðræðisvaktin hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum í alþingiskosningunum í vor og mun kynna stefnuskrá sína og framboðslista von bráðar.

 

Fleiri fréttir