Nýr styrkur til dvalar í Künstlerhaus Lukas í Þýskalandi

Samband íslenskra myndlistarmanna, Nes listamiðstöð á Skagaströnd og Künstlerhaus Lukas hafa gert með sér samstarfssamning til næstu tveggja ára um listamannaskipti í gestavinnustofur á Íslandi og í Þýskalandi. Umsóknir sendist í síðasta lagi fyrir sunnudaginn 24. febrúar nk.

SÍM og Nes auglýsa hér með styrk fyrir listamenn búsetta á Íslandi sem áhuga hafa á mánaðardvöl í Kunstlerhaus Lukas listamiðstöðinni í Ahrenshoop í Þýskalandi. Styrkurinn felst í niðurfellingu dvalargjalda fyrir einn mánuð, en listamennirnir kosta sjálfir ferðir og uppihald. Um er að ræða eitt pláss á ári frá hvorri gestavinnustofu. Mögulegir dvalartímar eru mars, apíl, júní eða september 2013.

Samkvæmt samstarfssamningnum velur sameiginleg dómnefnd SÍM og Ness listamennina úr innsendum umsóknum. Umsókn sendist í einu skjali á PDF formi á sim@sim.is, eða nes@neslist.is og skal hún innihalda:

  • ferilskrá með netslóð á heimasíðu listamannsins.
  • Stutt markmið með listsköpun og þeim þáttum sem áhersla verður lögð á meðan á dvölinni í Þýskalandi stendur.
  • Hvaða mánuður af ofangreindum kemur helst til greina vegna dvalarinnar og hvað sé annað val.
  • 4 jpeg myndir af listaverkum umsækjanda.

Nánari upplýsingar um Kunstlerhaus Lukas er að finna hér.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir