Nýr umsjónarmaður hjá Laxasetri Íslands

Bjarnþóra M Pálsdóttir var á dögunum ráðin sem umsjónarmaður Laxaseturs Íslands frá 1. maí 2014. Samkvæmt heimasíðu Laxasetursins er Bjarnþóra nemi í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum og er búsett á Blönduósi.

„Hún er mikill náttúruunnandi og hefur brennandi áhuga á veiði af ýmsum toga og ekki síst eldamennsku á bráðinni eftir góða veiði. Bjarnþóra eða Þóra eins og hún er alltaf kölluð mun taka vel á móti ykkur í Laxasetrinu í sumar,“ segir loks á heimasíðunni.

 

 

Fleiri fréttir