Nýr vefur Feykis.is í loftið

Velkominn á nýjan vef Feykis.is. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurhönnun á vefmiðlinum til að vera takti við nútímann og hefur afraksturinn litið dagsins ljós. Helsta breytingin felst í liprari framsetningu efnis á vefnum en áður og er Feykir.is nú aðgengilegri í snjallsímum og  spjaldtölvum.

Í grunninn er haldið áfram sömu braut hvað efnistök varðar, með lifandi ljósmyndavef og FeykirTv sem sýnir myndræmur úr héraði. Sagðar fréttir af mannlífi, íþróttum, fjallað um viðburði af ýmsu tagi og hvað íbúar samfélagsins eru að fást við hverju sinni.

Áfram verður hægt að fylgjast með Hvað er að gerast í dagskrárkerfinu og eru lesendur hvattir til að senda ábendingar um viðburði. Á vefnum eru áfram aðsendar greinar og eru lesendur sömuleiðis hvattir til að senda greinar til birtingar en það er von okkar að hafa þann þátt sem mest lifandi.

Einstaka vinsælir þættir sem hafa skapað vefnum sérstöðu halda velli, t.d. Rabb-a-babb, Herra Hundfúll, Matgæðingar og Það var lagið og aldrei að vita nema fleiri þættir bætist við á næstunni.

Ástæða er til að þakka þeim sem unnu að endurgerð vefsins en fyrirtækið Stefna Hugbúnaðarhús á Akureyri sá um forritun og uppsetningu í góðu samstarfi við okkur. Óli Arnar Brynjarsson yfirhönnuður Nýprents sá um hönnun.

Við vonum að þér líki nýi vefurinn. Allar ábendingar um nýja vefinn og þróun hans eru vel þegnar á netfang blaðsins, feykir@feykir.is. Hafðu samband - við hlökkum til að heyra frá þér.

Fleiri fréttir