Nýsköpunarstyrkir Landsbankans
Samfélagssjóður Landsbankans mun í ár veita nýsköpunarstyrki í fyrsta sinn. Veittir verða 27 styrkir fyrir samtals að fjárhæð 15.000.000 króna. Tekið er á móti umsóknum til 16. september 2011. Veittir verða sjö styrkir að upphæð 1 milljón króna hver og tuttugu styrkir að fjárhæð 400 þúsund krónur hver.
Markmið nýsköpunarstyrkja Landsbankans er gefa frumkvöðlum tækifæri að þróa nýja viðskiptahugmynd, eldri viðskiptahugmynd á nýju markaðssvæði eða nýja vöru. Nýsköpunarstyrkjunum er jafnframt ætlað að styðja við frumkvöðla til kaupa á efni, tækjum eða sérfræðiþjónustu vegna nýsköpunar eða sækja námskeið sem sannanlega byggir upp færni sem nýtist við þróun viðskiptahugmyndar. Dómnefnd er skipuð fimm fagaðilum, tveimur innan bankans og þremur utan bankans.
Landsbankinn er samfélagslega ábyrgur banki og vill vera hreyfiafl í að blása nýju lífi í atvinnulífið. Þáttur nýsköpunar er mikilvægur fyrir bankann og atvinnulífið til framtíðar. Því hefur Landsbankinn lagt sitt lóð á vogarskálarnar með nýrri þjónustu fyrir nýsköpunarfyrirtæki og nú með nýsköpunarstyrkjum bankans.
Úthlutun nýsköpunarstyrkja fer fram eigi síðar en 1. nóvember og verður úthlutunin kynnt opinberlega.
Nánari upplýsingar um nýsköpunarstyrkina
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að styrkja verðug samfélagsverkefni. Veittir eru ferns konar styrkir á hverju ári: námsstyrkir, samfélagsstyrkir, nýsköpunarstyrkir og umhverfisstyrkir.