Nýstofnuð unglingadeild Björgunarsveitarinnar Blöndu

Það var á haustdögum að nokkrum félögum í Björgunarsveitinni  Blöndu fóru að huga að því  hvort ekki væri grundvöllur fyrir því að endurvekja unglingadeild björgunarsveitarinnar . Farið var í skólana á svæðinu og áhugi kannaður hjá krökkunum sem eru 14 til 16 ára og var það mat mann að það væri áhugi fyrir hendi.

Það var svo þann 9. febrúar sem haldin var stofnfundur í húsi Björgunarsveitarinnar og á hann mættu 24 krakkar. Þar var kosin stjórn og skipaðir umsjónarmenn sem eru Hlynur Wüum Finnbogason og Albert Scheel Guðmundsson  og í stjórnina voru kosnir þeir Hjálmar Sigurðsson Formaður, Friðrik Már Sigurðsson Gjaldkeri og Bergur Guðmundsson ritari.

Fundir eru haldnir annan hvern miðvikudag og svo eru námskeið og ferðir um helgar öðru hverju. Í sumar er svo stefnan sett á að fara í útivistarskóla sem Landsbjörg standur fyrir á Gufuskálum  og  einnig er fyrirhugað að fara á landsmót unglingadeilda. Annars eru markmið unglingadeilda að kynna og þjálfa ungt fólk fyrir starfi í björgunarsveitum með mikilli áherslu á hollri og góðri útivist í náttúru Íslands.

Fleiri fréttir