Nýtt endurskinsmerki og tveir nýir bæklingar

Frá afhendingu endurskinsmerksins á Hólmsheiði.
Frá afhendingu endurskinsmerksins á Hólmsheiði.

Alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður er nú nýhafinn en október er lagður undir vitundarvakningu ár hvert. ADHD samtökin taka virkan þátt í átakinu nú líkt og fyrr með margvíslegum hætti. Nýtt endurskinsmerki var kynnt í dgær, tveir nýir fræðslubæklingar voru gefnir út og árlegt málþing samtakanna var kynnt. Málþingið veðrur haldið í lok október og beinist athyglin að föngum og öðrum sem lenda í refsivörslukerfinu.

Tveir nýir fræðslubæklingar voru gefnir út í gær, „Náin sambönd & ADHD“, bæklingur sem ætlaður er fullorðnum einstaklingum með ADHD og mökum þeirra og „What is ADHD?“ grunnbæklingur um ADHD á ensku. Áður hefur komið út íslenskur bæklingur og þýðing hans á pólsku. Bæklingarnir eru fáanlegir á skrifstofu ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, Reykjavík og á rafrænu formi á vef samtakanna, www.adhd.is

Í lok vitundarmánaðar kemur svo út fræðslubæklingur um réttarvörslukerfið & ADHD. Nokkuð er um liðið síðan ADHD samtökin gáfu út fræðslubækling ætlaðan lögreglu, fangavörðum og öðrum þeim sem starfa í réttarvörslukerfinu. Bæklingurinn kemur út í tengslum við málþing samtakanna sem haldið verður 28. október nk.

Endurskinsmerki

Formleg afhending endurskinsmerkis ADHD samtakanna árið 2016 fór fram í gær en afhending þess markar upphaf vitundarmánaðar. Þetta er áttunda árið í röð sem ADHD samtökin selja endurskinsmerki í þágu starfseminnar. Sem fyrr á Hugleikur Dagssson teikninguna á merkinu.

Páll Winkel, fangelsismálastjóri og starfsfólk Fangelsismálastofnunar, fengu afhent fyrstu eintök bæklinganna og endurskinsmerksins við athöfn í fangelsinu á Hólmsheiði í gær en athöfnin var táknræn fyrir þær áherslur sem ADHD samtökin setja í vitundarmánuði þetta árið.

„Fangelsismálastofnun fagnar því að athyglinni sé í þessu vitundarátaki beint að föngum. Mikilvægt er að fagleg umræða eigi sér stað um málefnið og að við sameinumst öll um að gera vel á þessu sviði. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra að leita leiða til að aðstoða fanga og auka þannig líkurnar á að þeir geti tekið þátt í samfélaginu án afbrota að lokinni afplánun,“ sagði Páll Winkel, fangelsismálastjóri við athöfnina.

Fleiri fréttir