Nýtt listaverk afhjúpað á Skagaströnd í dag
Nes listamiðstöð stendur fyrir opnun á nýju listaverki við gatnamót Hólanesvegar og Oddagötu á Skagaströnd í dag. Það er listamaðurinn Adam Eddy sem bjó til listaverkið sem á að spegla mynd af Spákonufelli niður í gegnum húsið á hvítt borð.
Fólk er hvatt til að kíkja að listaverkinu í dag, laugardaginn 3. ágúst, klukkan 15:00 fyrir stutta kynningu.