Nýtt met í sauðfjárslátrun hjá SAH Afurðum
Húni segir frá því að á föstudaginn lauk sauðfjárslátrun hjá SAH Afurðum á þessu hausti. Alls var slátrað 94.375 fjár, sem er all miklu meira en áður hefur verið slátrað hjá félaginu að sögn Sigurðar Jóhannessonar framkvæmdastjóra. Sigurður segir að sláturtíðin hafi gengið mjög vel og það sé ekki síst hörkuduglegu starfsfólki að þakka, en auk þess hafi tíðarfar verið einstaklega hagstætt sem hafi auðveldað alla flutninga.
Sigurður segir að meðalvigt sé nokkru meiri í ár en á síðasta ári og greinilegt sé að sumarið hafi verið gjöfult, en auk þess sé markvisst ræktunarstarf bænda greinilega að skila sér.
Væntanlega verður auglýstur einn sláturdagur seinna í haust til að losa bændur við fé sem kann að heimtast næstu vikurnar.
