Nýtt nafn sveitarfélagsins samþykkt
feykir.is
Skagafjörður
14.06.2022
kl. 10.06
Sveitarstjórn Skagafjarðar Fundaði í gær og fór m.a. yfir kosningu á nafni á sameinuðu sveitarfélagi Skagafjarðar og Akrahrepps. Kosið var samhliða sveitarstjórnarkosningum um nafn á sameinað sveitafélag og kosið var milli þriggja nafna: Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagafjörður og Hegranesþing. Í kosningu fékk nafnið Skagafjörður meirihluta 1110 atkvæða af 2048 greiddum atkvæðum. Sveitarstjórn samþykkti nýtt nafn sveitarfélagsins einróma með níu atkvæðum.
Velkomin í Skagafjörð!
/IÖF