Nýtt námsefni fyrir miðstig – Ábyrg og jákvæð notkun netsins og annarra nýmiðla
Árið 2010 sendi SAFT lestrarbækurnar Hrekklaus fer á netið, Leikurinn og Afmælisveislan eftir Þórarinn Leifsson, sem gjöf á alla leik- og grunnskóla landsins. Bækurnar voru unnar af Heimili og skóla – Landssamtökum foreldra í samstarfi við Lýðheilsustöð, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Námsgagnastofnun. Tilgangurinn með lestrarbókunum var að fræða börn á einfaldan hátt um jákvæða og örugga netnotkun.
Árið 2011 ferðaðist ungmennaráð SAFT í kringum landið með jafningjafræðslu-erindi þar sem nemendur settu upp leikrit Elítunnar og Rannveigar Þorkelsdóttur, Þú ert það sem þú gerir á netinu!
Nú er verið að útbúa efni fyrir miðstig sem dreift verður veturinn 2011-2012, en verkefnið hefur hlotið styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmála-ráðuneytisins og frá Samfélagssjóði Landsvirkjunar og Símanum. Um er að ræða lestrarbókina Rusleyjan, eftir Þórarinn Leifsson, sem fjallar um ábyrga og jákvæða notkun netsins og annarra nýmiðla, handrit og framkvæmdarlýsingu að jafningjafræðslu og spunaleikverki eftir Rannveigu Þorkelsdóttur leiklistar-kennara. Leikritið er ætlað til uppsetningar af leiklistarhópi við áhugasama skóla. Bæði lestrarbók og leikrit verða send á alla grunnskóla landsins án endurgjalds um miðjan október. Samhliða verður mikilvægi endurnýtingar á gömlum smáraftækjum kynnt fyrir nemendum, forráðamönnum þeirra og starfsfólki grunnskóla. Slík tæki, sem liggja víða á heimilum, er hægt að endurnýta með litlum tilkostnaði og gefa annað líf.
Verkefnið er unnið í samstarfi SAFT og Heimilis og skóla við Háteigsskóla, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Landlæknisembættið (áður Lýðheilsustöð), Námsgagnastofnun, Græna framtíð og Félag um leiklist í skólastarfi.
Opnuð verður vefsíða með upplýsingum um verkefnið í heild sinni. Jafnframt býður Græn framtíð nemendum og nemendafélögum að safna smáraftækjum í fjáröflunarskyni, t.d. fyrir skólaferðalög, góðgerðarfélög eða skólann sinn. Græn framtíð mun koma fyrir söfnunarkassa hjá þeim sem þess óska og verður kassinn sóttur þegar verkefninu lýkur.
SAFT og samstarfsaðilar vænta góðs samstarfs við grunnskóla landsins og vonast til þess að sem flestir lesi bókina, setji upp spunaleikritið samhliða jafningjafræðslu og taki þátt í söfnuninni.
Nánari upplýsingar: saft@saft.is / heimiliogskoli@heimiliogskoli.is
/Fréttatilkynning