Nýtt námsver á Blönduósi
Nýlega var námsver sem áður var staðsett á Þverbrautinni flutt yfir í Kvennaskólann á Blönduósi. Á Norðurlandi vestra eru starfandi fjögur námsver, á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd og Sauðárkróki. Sveitarfélögin reka námsverin, hvert á sínu svæði.
Í námsverunum er fjarfundabúnaður, FS háhraðanet, aðstaða til ljósritunar og kaffiaðstaða. Námsverin eru ætluð háskólanemum í fjarnámi auk annarra fjarnema, en nemendur geta fengið lykla kjósi þeir það.
Starfsmenn Þekkingarsetursins hafa umsjón með námsverinu á Blönduósi og munu aðstoða nemendur ef þörf er á, s.s. svara spurningum varðandi háskólanám, koma þeim í samband við starfs- og námsráðgjafa Farskólans, sitja yfir prófum, o.fl.
Opið hús verður haldið þriðjudaginn, 2. september, kl 20:00. Námsver er staðsett við suðurenda Kvennaskólans, á móti Heimilisiðnaðarsafninu. Í fréttatilkynningu frá Þekkingarsetrinu eru allir nemendur sem skráðir eru í fjarnám, ásamt þeim sem hyggjast hefja fjarnám í framtíðinni, hvattir til að koma, kynnast starfsfólkinu og þeirri þjónustu sem í boði er. Starfsmaður Farskólans mun einnig vera á staðnum. Heitt verður á könnunni og eru allir boðnir velkomnir.
