Nýtt tölublað Búnaðarblaðsins Freyju komið á vefinn

Búnaðarblaðið Freyja er komið út og nýtt blað aðgengilegt á vefnum. Nú er tæpt ár liðið frá því hugmyndin um útgáfu blaðsins kviknaði og frá þeim tíma þrjú blöð litið dagsins ljós.

„Þema blaðsins er vorið líkt og veðráttan undanfarna daga hefur borið með sér eftir langan kuldatíma fyrr í vetur. Þó er ekki ólíkt að eigi eftir að kólna aftur áður en vorið kemur endanlega,“ segir í tilkynningu til lesenda frá ritstjórn blaðsins.

Í blaðinu eru greinar um sáningu, áburðaráætlanir og sauðburð að ógleymdir umræðunni. Einnig má lesa frásögn frá heimsókn austur á gresjur Ungverjalands ásamt ýmsum fróðleik um blendingsrækt nautgripa og blandaðan búskap á Tannstaðabakka í Hrútafirði.

Blaðið má nálgast hér. 

 

Fleiri fréttir