Nýtt veiðihús við Laxá á Ásum

Nýtt veiðihús við Laxá á Ásum var formlega opnað á laugardaginn 16. júní sl. í landi Hnjúka og rétt við aðalveiðistaðina í ánni.

Húni.is greinir frá því að húsið sé allt hið glæsilegasta og mikill sómi muni verða af því fyrir veiðifélagið.

Veiðifélag Láxár á Ásum er eigandi hússins en aðalverktaki þess var Trésmiðjan Stígandi ehf. en Stígandi fékk til verksins ýmsa undirverktaka sem flestir voru héðan af svæðinu og því var verkið að mestu leiti unnið af heimamönnum.

Fleiri fréttir