Óánægja með fasteignaskatt á hesthús
Á síðasta fundi bæjarráðs Blönduósbæjar fyrir skömmu urðu nokkrar umræður um álagðan fasteignaskatt á hesthús í þéttbýli en ákveðið var fyrr á árinu að hækka þær hjá hesthúsaeigendum á Blönduósi.
Fulltrúi S-listans gerði að tillögu sinni að horfið verði frá breytingu á álagningu fasteignaskatts á hesthús fyrir árið 2011 án kynningar og ákvörðunar bæjarstjórnar og því verði lagning með sama hætti og undanfarin ár en sú tillagan var felld með tveimur atkvæðum gegn einu.
Í kjölfarið létu fulltrúar L-listans bóka eftirfarandi:
Samkvæmt úrskurði yfirfasteignamatsnefndar skulu hesthús í þéttbýli bera c-gjald og ber Blönduósbæ að hlíta þeim úrskurði. Með því að ganga gegn úrskurðinum væri Blönduósbær að brjóta gegn jafnræði á eigendum þeirra fasteigna sem tilheyra c-flokki lögum samkvæmt.
Bæjarráð vill endurskoða álagningu á sorpeyðingargjaldi á hesthús í þéttbýli og óskar eftir frekari gögnum varðandi sorpeyðingargjald.