Ófært á Þverárfjalli og frá Hofsós til Siglufjarðar

Á Norðurlandi vestra er snjóþekja og skafrenningur á Öxnadalsheiði en ófært á Þverárfjalli samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, unnið er að mokstri. Þá er einnig ófært frá Hofsós til Siglufjarðar, þá er þungfært á Skagastrandavegi en unnið að hreinsun en annars eru hálkublettir nokkuð víða. 

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 10-15 m/s og él í dag. Heldur hægari með kvöldinu. Norðaustan 5-10 og stöku él á morgun. Hiti um frostmark.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt, víða 5-10 m/s. Dálitlar skúrir og hiti 0 til 7 stig, mildast sunnanlands, en stöku él norðan- og austantil og hiti um og undir frostmarki.

Á miðvikudag:
Austlæg átt, skýjað með köflum og þurrt að mestu, en sums staðar skúrir eða él suðvestan- og vestantil. Kólnar lítið eitt.

Á fimmtudag:
Fremur hæg breytileg átt og úrkomulítið, en suðlæg átt 5-10 seinnipartinn og skúrir eða él um vestanvert landið. Frost 0 til 7 stig um landið norðaustanvert, en annars hiti 0 til 5 stig.

Á föstudag:
Vaxandi sunnan og suðaustan átt með rigningu, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Heldur hlýnandi veður.

Á laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir suðvestan átt með skúrum eða slydduéljum, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Heldur kólnandi.

Fleiri fréttir