Ófært á Þverárfjalli og Öxnadalsheiði

Hálka er á Norðvesturlandi og ófært er á Þverárfjalli og Öxnadalsheiði. Siglufjarðarvegur er lokaður vegna snjóflóðs í Mánaskriðum og verður skoðað þegar líður á morguninn, samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Á Ströndum og Norðurlandi bestra er spáð norðaustan 13-20 m/s og snjókomu eða slyddu, hvassast á annesjum. Hiti kringum frostmark.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Norðaustan 13-18 m/s og él, en 18-23 og snjókoma á Vestfjörðum. Heldur hægara og úrkomulítið SV-lands. Hiti kringum frostmark.

Á föstudag:
Norðaustan 10-15 m/s og víða él, en úrkomulítið V-lands. Kólnandi veður.

Á laugardag:
Allhvöss norðanátt með A-ströndinni, en annars mun hægari vindar. Él N- og A-lands, en annars léttskýjað. Frost víða 1 til 10 stig, mest í innsveitum.

Á sunnudag:
Norðankaldi og él með A-ströndinni, en annars hægviðri og víða léttskýjað. Talsvert frost um land allt.

Á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp SV-lands.

Á þriðjudag:
Útlit suðaustanátt með snjókomu eða slyddu víða á landinu og hægt hlýnandi veður.

Fleiri fréttir