Ófært á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi
Á Norðurlandi er stórhríð og óveður og lítið ferðaveður. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ófært á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi. Þæfingsfærð og stórhríð er á Öxnadalseiði en hálka eða snjóþekja er á flestum öðrum leiðum og stórhríð.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 13-20 m/s. Í veðurkortum Veðurstofunnar verður 15-23 m/s á morgun, hvassast vestantil. Snjókoma eða él en ívið minni úrkoma á morgun. Frost 6 til 12 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Austan- og norðaustan 15-25 m/s, hvassast syðst, en 10-15 NA-til á landinu. Snjókoma S-lands, annars víða él. Frost 2 til 12 stig, mildast syðst, en kaldast í innsveitum fyrir norðan.
Á fimmtudag og föstudag:
Austan 8-18 m/s, hvassast með S-ströndinni. Yfirleitt úrkomulaust á V-verðu landinu, en él A-til. Frost 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á laugardag og sunnudag:
Norðaustan 8-15 m/s. Snjókoma N- og A-lands, en slydda um tíma SA-lands. Þurrt á SV- og V-landi. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust með S-ströndinni.
Á mánudag:
Útlit fyrir kalda norðanátt með éljum N-til.