Ófært á Þverárfjalli, Vatnsskarði og Siglufjarðarvegi

Á Norðurlandi vestra er ófært á Þverárfjalli, Vatnsskarði og Siglufjarðarvegi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þæfingur er annars víða eða hálka ásamt stórhríð eða skafrenning. 

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 15-23 m/s, hvassast á annesjum. Snjókoma, en él veður í kvöld. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður heldur hægari á morgun. Frost 3 til 10 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag og miðvikudag:
Norðaustan hvassviðri eða stormur, hvassast sunnan- og vestantil. Snjókoma eða él einkum norðantil og kalt í veðri.

Á fimmtudag:
Hvöss austan átt sunnantil á landinu, en annars hægari vindur. Stöku él og kalt í veðri.

Á föstudag:
Útlit fyrir hvassa austlæga átt. Snjókoma eða él, en slydda við suðurströndina. Hlýnandi veður.

Á laugardag og sunnudag:
Minnkandi suðaustan og austan átt. Skúrir eða él um landið austanvert, en úrkomulítið vestantil. Hiti 0 til 5 stig, en hiti um frostmark norðan- og austanlands.

Fleiri fréttir