Ófært á Þverárfjallsvegi

Færð á vegum að morgni 22. febrúar 2016. Mynd/ Vegagerðin.
Færð á vegum að morgni 22. febrúar 2016. Mynd/ Vegagerðin.

Á Norðurlandi er hálka og snjóþekja á vegum en ófært er á Þverárfjalli, samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þungfært er á Siglufjarðarvegi frá Ketilás í Siglufjörð. Samkvæmt spá Veðurstofunnar snýst í hæga suðlæga átt á dag á Ströndum og Norðurlandi vestra, léttir til og kólnar. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjart, en skýjað með köflum um landið vestanvert. Frost 2 til 12 stig, kaldast norðaustantil en hlánar við suðvestur ströndina um kvöldið. 

Á fimmtudag:

Austlæg átt 3-10 m/s og skýjað með köflum en bjartviðri norðaustanlands. Dálítil él við suðaustur ströndina en snýst í hæga vestlæga átt með snjókomu eða slyddu suðvestantil undir kvöld. Frost 1 til 10 stig. 

Á föstudag og laugardag:

Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með köflum eða bjartviðri en stöku él við ströndina. Talsvert frost.  

Á sunnudag:

Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt og snjókomu suðvestantil síðdegis en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi.

Fleiri fréttir