Ófært frá Hofsós til Siglufjarðar
Norðvestanlands er víða snjóþekja, hálka og éljagangur. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er snjóþekja og skafrenningur á Þverárfjalli. Hálka og éljagangur er á Vatnsskarði. Þæfingsfærð er á veginum frá Sauðárkrók að Hofsós en ófært þaðan og til Siglufjarðar og beðið með mokstur. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er austan og norðaustan 3-10 og él með morgninum en úrkomuminna síðdegis. Frost 1 til 6 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Norðaustan 5-13 m/s, hvassast við SA-ströndina og á Vestfjörðum. Skýjað og stöku él um landið norðan og austanvert annars léttskýjað. Vægt frost en yfirleitt frostlaust með ströndinni.
Á föstudag og laugardag:
Austlæg átt, 5-13 m/s, hvassast syðst, en hægari norðaustanlands. Él suðaustan og austantil annars úrkomulítið og bjart á köflum. Hiti um frostmark NA-lands annars 0 til 5 stig yfir daginn.
Á sunnudag og mánudag:
Breytileg átt, 3-8 m/s, en austan 5-13 syðst. Bjartviðri og hiti undir frostmarki en 0 til 4 stig S- og V-lands að deginum.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með éljum fyrir norðan og kólnandi veðri.