Ófært og óveður á Öxnadalsheiði

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir en þó er sumstaðar vetrarfærð á heiðum og útvegum. Hálkublettir eru á Þverárfjalli og á Vatnsskarði.  Ófært og óveður er á Öxnadalsheiði. Á Ströndum og Norðurlandi vestra gengur í suðaustan 18-23 m/s með rigningu, en lægir heldur síðdegis. Hiti 2 til 7 stig.

Sunnan 5-10 og skúrir í kvöld, en síðan suðvestan 8-13 og él og hiti nálægt frostmarki.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Hæg suðaustlæg eða breytileg átt, víða léttskýjað og vægt frost til landsins, en annars hiti 0 til 4 stig.

Á laugardag og sunnudag:

Hæg austlæg eða breytileg átt og léttskýjað N-til, austankaldi og skýjað syðra, en súld við ströndina. Frostlaust að deginum, en víða næturfrost, einkum í innsveitum N-til.

Á mánudag og þriðjudag:

Austan og suðaustan 5-13 sunnan- og suðaustanlands, en annars hægviðri. Væta SV-til, en annars bjartviðri að mestu. Fremur milt í veðri.

Fleiri fréttir