Ófært og stórhríð á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Hálkublettir, éljagangur og skafrenningur er í Húnavatnssýslum. Snjóþekja og skafrenningur er á Skagastrandavegi og í Langadal. Ófært og stórhríð er á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi.
Á Ströndum og Norðurland vestra er norðaustan 18-23 m/s og snjókoma eða él, vægt frost. Norðaustan 13-18 í kvöld, lægir á morgun og styttir upp.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðan 13-18 austast, annars víða 8-13 m/s. Él fyrir norðan og austan, en léttskýjað SV-til á landinu. Hægari vindur síðdegis. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust að deginum syðst.
Á sunnudag:
Suðlæg eða breytileg átt, víða 3-10 m/s. Skýjað með köflum og áfram kalt í veðri. Vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa S- og V-lands um kvöldið.
Á mánudag:
Hvöss suðaustanátt og rigning, en snjókoma í fyrstu fyrir norðan. Hægari síðdegis og rigning SA-til, annars úrkomulítið. Hlýnandi veður.
Á þriðjudag:
Suðvestanátt og dálítil él. Kólnandi í bili.
Á miðvikudag:
Hvöss suðaustanátt með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu. Hlýnandi veður.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðvestanátt með éljum S- og V-lands, en bjartviðri á NA-landi.