Ofsaveður og fárviðri í kortunum

Vindaspákortin eru ansi litrík næstu klukkutímana, svona verður ástandið kl. 23:00. Mynd: vedur.is.
Vindaspákortin eru ansi litrík næstu klukkutímana, svona verður ástandið kl. 23:00. Mynd: vedur.is.

Aðvaranir Veðurstofunnar hafa vonandi ekki farið fram hjá neinum. Veðrið skellur fyrst á Suðurlandi og er ekki ráðlegt að vera á ferðinni þar eftir klukkan 12 á hádegi. Annars staðar á landinu, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu, er ráðlegt að vera ekki á ferðinni eftir klukkan fimm síðdegis.

Í viðvörun Veðurstofunnar segir: Vaxandi austanátt í dag, víða ofsaveður eða fárviðri síðdegis og um kvöldið, fyrst S-til á landinu. Talsverð eða mikil slydda eða rigning SA-lands í kvöld. Sunnan og suðvestan stormur á morgun með slyddu eða rigningu.

Veðurhorfur næsta sólarhringinn: Suðaustan 8-15 m/s og skýjað, hvassast við S- og V-ströndina, en hægari og bjart NA-lands Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum, en víða frostlaust við S- og V-ströndina. Ört vaxandi austanátt í dag og dregur úr frosti, fyrst S-til.

Austan 20-25 og snjókoma eða skafrenningur S-lands upp úr hádegi. Heldur síðan áfram að hvessa og víða ofsaveður eða fárviðri á landinu í kvöld, 25-35 m/s með talsverðri slyddu eða snjókomu, en rigningu syðst. Hiti um frostmark í kvöld, en 2 til 7 stig sunnan heiða. Suðaustan og austan 20-25 með rigningu S-lands í nótt, en dregur smám saman úr veðurofsanum á N- og A-landi en áfram ofsaveður víða NV-til á landinu.

Sunnan og suðvestan stormur með rigningu eða slyddu þegar kemur fram á morgundaginn, en hægari og léttir til NA-lands. Fer aftur kólnandi.

Fleiri fréttir