„Og sumardýrðin þver“
Þriðjudaginn 6. september 2016 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Fundurinn hófst kl. 14:00. Fundarmenn voru sextán talsins. Svo sem þegar lá fyrir hafði veðurspá klúbbsins fyrir ágústmánuð gengið vel eftir.
Nýtt tungl kviknaði fimmtudaginn 1. september í austri kl. 09:03. „Tilfinning og draumar gefa til kynna að veður í september verði milt, vætusamt, margátta, en þó meira í suðlægum áttum og hiti vel yfir meðallagi m.v. árstíma. Búast má við allgóðu veðri um göngur hér í Svarfaðardal svo lengi sem þoka læðist ekki í fjallabrúnir,“ segir í september spá veðurklúbbsins.
Ágúst og september mánaðar:
Í ágúst slá menn engi
og börnin tína ber.
Í september fer söngfugl
og sumardýrðin þver.
„Bestu kveðjur til gangamanna,“ segir að lokum í fréttatilkynningu frá veðurklúbbnum.
Veðurklúbburinn á Dalbæ