Öll rör að komast í jörð á Skagaströnd
Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar í síðustu viku kom fram hvernig staða hitaveitulagna í bænum er háttað en í minnisblaði sveitarstjóra kom m.a. fram að lagningu dreifikerfis innan Skagastrandar er að verða lokið og gert ráð fyrir að öll rör verði komin í jörð og hús tengd innan skamms. Reiknað er með að mest öllum frágangi verktaka verði lokið um miðjan september. Stofnlögnin er komin að Hafurstöðum, segir í fundargerð.
„Lagning gengur almennt vel og stefnt að því að stofnpípan verði komin alla leið um 20. september. Dæluhúsin við Laxá og á Skagaströnd eru tilbúin til að setja í þau þann búnað sem þarf. Gert er ráð fyrir að dæluhús verði tengd og frágengin til notkunar um miðjan október nk. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK er gert ráð fyrir að þá verði vatni hleypt á og fyrstu húsin geti fengið hitaveitu,“ segir í minnisblaði sveitarstjóra.