Öllum umsóknum hafnað

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra ákvað að hafna öllum umsóknum sem bárust um starf framkvæmdastjóra samtakanna sem auglýst var í júní síðastliðnum. Þrettán umsóknir bárust um starfið en þrír drógu umsóknir sínar til baka.  Þetta kemur fram í fundargerð SSNV frá 30. júlí.

Stjórn SSNV auglýsti starf framkvæmdastjóra samtakanna laust til umsóknar í júní og rann umsóknarfrestur út þann 7. júlí síðastliðinn. Skv. auglýsingu var leitað eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, sýnir frumkvæði og hefur góða hæfileika í mannlegum samskiptum. Háskólamenntun sem nýtist í starfi var skilyrði og æskilegt að umsækjandi hefði þekkingu á sveitarstjórnarmálum og rekstri.

Viðskiptafræðingur, lögfræðingur, framkvæmdastjóri, gæðastjóri, rekstrarráðgjafi, fyrrverandi bæjarstjóri og stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur voru á meðal umsækjenda.

Stjórn SSNV ákvað þess í stað að hefja leit að einstaklingi til að gegna starfi framkvæmdastjóra samtakanna.

Fleiri fréttir