Olweusarfundur á Blönduósi

Olweusarfundur verður haldinn fyrir alla foreldra grunnskólans dagana 7. og 8. september í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Fram kemur á vefmiðlinum huni.is að á fundinum mun Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir sérkennari í Árskóla, og umsjónarmaður Olweusarverkefnisins á þessu svæði, ræða um Olweusaráætlunina, einelti og niðurstöður eineltiskannanna síðustu ára.

Í framhaldi af fundinum verður kynningarkvöld fyrir foreldra 1. – 5. bekkjar. Fer sú kynning fram í heimastofum viðkomandi bekkja og hefst kl. 20:45. Fimmtudaginn 8. september verður svo kynningarkvöld fyrir foreldra 6. – 10. bekkjar sem hefst kl. 19:30. Á kynningarkvöldinu hitta foreldrar umsjónakennara barna sinna og farið verður yfir skólastarf vetrarins.

Í tilkynningu frá skólastjóra Blönduskóla kemur fram að mikilvægt sé að hver nemendi hafi a.m.k. einn fulltrúa á þessum fundum.

Fleiri fréttir