Ómar kom í Húnavatnssýsluna í morgun
Ómar Ragnarsson, fjölmiðla- og ævintýramaður, sem lagði í gær af stað á rafknúnu hjóli frá Akureyri til Reykjavíkur var kominn að Hópi í Húnavatnssýslum rétt fyrir klukkan átta í morgun, eins og sagt er frá á vef RÚV.
Hann keyrði 159 kílómetra í gær og komst að Stóru Giljá, vestan við Blönduós, en í gærmorgun hafði hann sett sér það markmið að komast á Blönduós. Ómar lagði aftur af stað klukkan hálf sex og var kominn 20 kílómetra leið um einni og hálfri klukkustund síðar.
Ómar lagði upp í ferðalag sitt til að reyna að setja nokkur Íslandsmet á rafhjóli til að varpa ljós á nauðsyn þess að Íslendingar nýttu sem fyrst og best einstæða aðstöðu sína til að skipta um orkugjafa, eins og RÚV greinir frá.