Önnur lota verkfallsaðgerða hófust á miðnætti

Önnur lota í boðuðum verkfallsaðgerðum hófst á miðnætti en þá lögðu rúmlega 10 þúsund félagar Starfsgreinasambandsins niður vinnu. Innan sambandsins eru m.a. Aldan stéttarfélag í Skagafirði og Stéttarfélagið Samstaða á Blönduósi. Verkfallið mun standa í tvo heila sólarhringa og lýkur því á miðnætti þann 7. maí eða á aðfaranótt föstudags.

Þeir sem starfa hjá ríkisstofnunum (t.d. Heilbrigðisstofnun Norðurlands) eða sveitarfélagi fara ekki í verkfall. Þessar aðgerðir snúa eingöngu að starfsfólki á almennum vinnumarkaði. Ef ríki eða sveitarfélag er launagreiðandi starfsmanns þýðir það að viðkomandi starfsmaður er ekki á leið í verkfall, sama hvaða starfi hann gegnir innan fyrirtækisins.

„Borgið okkur mannsæmandi laun ef þið viljið hafa okkur í vinnu“

„Uppgangsskeiðið sem virðist vera hafið takmarkast því miður við efri lög þjóðfélagsins. Aðrir berjast í bökkum. Eina leiðin fyrir þá sem eru með lágar tekjur, sem eiga ekki síður skilið að njóta góðærisins en aðrir, er að setja niður fótinn. Það er allt útlit fyrir að vinnustöðvanir verði langvarandi þó að samningsvilji okkar sé ríkur. Skilaboð okkar fólks eru: „Borgið okkur mannsæmandi laun ef þið viljið hafa okkur í vinnu.“ SA verða að átta sig á því að við hvikum ekki frá þeirri grunnkröfu,“ eru skilaboð Starfsgreinasambandsins vegna kjarabaráttunnar sem birt voru á facebook-síðu sambandsins, Vinnan mín.

Á heimasíðu Öldunnar segir að skrifstofa félagsins verði að sjálfsögðu opin eins og venjulega og eru félagsmenn hvattir til að hafa samband og gefa kost á sér til verkfallsvörslu.

„Ef félagsmenn verða varir við verkfallsbrot eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 453 5433. Einnig er hægt að hringja í Þórarinn formann í síma 891 9383,“ segir á vefnum.

Skipulag verkfallsaðgerðanna sem framundan eru:

  • 6 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí).
  • 7 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí).
  • 19 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí).
  • 20 maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí).
  • 26 maí 2015 Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.

Nánari upplýsingar um verkföll, hvenær þau eru áætluð, til hverra þau taka, kröfur SGS, undanþágur o.s.frv. má nálgast á verkfallsvef SGS . Einnig miðlar sambandið upplýsingum á facebooksíðunni „Vinnan mín“.

Fleiri fréttir