Opið fyrir umsóknir í AVS rannsóknarsjóð

AVS auglýsir eftir styrkumsóknum.
AVS auglýsir eftir styrkumsóknum.

Á nýrri heimasíðu SSNV er vakin athygli á því að opið er fyrir umsóknir í AVS rannsóknasjóð, sem hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis.

Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 20, 1. desember 2015. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun.is og bréflega á póstfangið Byggðastofnun, v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur. Vakin er athygli á því að umsóknum þarf bæði að skila rafrænt og bréflega.

Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir tvo flokka: 

a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en styrkumsókn er afgreidd. 

b. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða til að undirbúa stærri verkefni á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð er allt að einni milljón króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða. Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar.

Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is.

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytisins.

 

Fleiri fréttir