Opið fyrir umsóknir í Slipptöku Driftar EA 2025
Drift EA er að fara af stað með mjög spennandi nýsköpunarprógramm fyrir frumkvöðla og teymi með þróaðar hugmyndir. Um er að ræða fjórar vinnustofur sem endar á kynningu – og getur opnað leið fyrir þátttakendur inn í Hlunninn, ársprógramm með fjármagni, ráðgjöf og stuðningi. Drift EA hefur opnað fyrir umsóknir í Slipptökuna (e. Test Drive) 2025. Í Slipptökunni felast fjórar kraftmiklar vinnustofur fyrir frumkvöðla og teymi með hugmyndir sem eru tilbúnar á næsta stig. Slipptakan endar á formlegri kynningu verkefnanna þar sem valin verkefni komast áfram í Hlunninn.
Slipptakan býður þátttakendum upp á markvissa mótun og þróun viðskiptahugmynda, persónulega leiðsögn sérfræðinga, þjálfun í framkomu og kynningum ásamt aðgangi að öflugu frumkvöðlasamfélagi.
Valdar hugmyndir komast svo áfram í Hlunninn, ársprógramm Driftar EA þar sem frumkvöðlarnir fá aðstöðu, fjármögnun og ráðgjöf til að þróa hugmyndina áfram og komast á fulla siglingu.
“Við erum sérstaklega að leita að fólki með hugmyndir sem er tilbúið að helga sig verkefninu með krafti og tíma,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Driftar EA.
Drift EA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar staðsett í hjarta Akureyrar við Ráðhústorg og byggir á sænskri fyrirmynd sem hefur vakið athygli fyrir árangursríkt stuðningsumhverfi fyrir sprotafyrirtæki og samfélagsverkefni. Fyrir ári síðan gerði Drift EA samstarfssamning við átta ráðgjafafyrirtæki og sérfræðinga með fjölbreytta sérfræðiþekkingu, þar á meðal Eflu, COWI, Deloitte, Enor, Geimstofuna og KPMG. Þessir ráðgjafar eru kallaðir „Driftarar“ og munu þeir ásamt þjálfurum veita teymunum markvissa ráðgjöf á lykilsviðum eins og fjármögnun, stefnumótun, hönnun, tæknilausnum og viðskiptalegri greiningu. Háskólinn á Akureyri er einnig virkur þátttakandi með nýráðinn verkefnastjóra í frumkvöðla- og nýsköpunarmálum.
Síðasta ár tóku 14 teymi þátt í Slipptökunni og sex þeirra komust áfram í Hlunninn. Þar á meðal voru sprotafyrirtækin Quality Console, sem þróar stafrænt gæðaeftirlitskerfi fyrir matvælaiðnað, Sea Thru, sem vinnur að rekjanleikakerfi fyrir sjávarafurðir og Grænafl, sem vinnur að orkuskiptum í strandveiðiflotanum.
Þá tók Drift EA einnig undir sinn verndarvæng þrjú samfélagsverkefni með skýr markmið um að styrkja lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi: Komplíment markaðs og ráðgjafarstofa, Íbúðir út lífið og Icelandic with Bryndís. Þessi verkefni sýna þann kraft og fjölbreytileika sem býr í teymum og hugmyndum á svæðinu.
„Slipptakan var virkilega vel heppnuð og gaf okkur dýrmæt verkfæri fyrir frumkvöðlastarfið. Það myndaðist einstakt samfélag þátttakenda sem einkenndist af samkennd og drifkrafti. Sú reynsla sem Slipptakan gaf mun nýtast verkefninu okkar vel – sérstaklega við að fínpússa viðskiptahliðina,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls, sem tók þátt árið 2024.
„Við sjáum mikinn styrk í því að blanda saman hugmyndum úr ólíkum áttum – hvort sem um er að ræða tækni, samfélagsverkefni eða sprotafyrirtæki. Markmiðið með Slipptökunni og Hlunninum er að skapa jarðveg þar sem frumkvöðlar geta vaxið og hugmyndir blómstrað,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Drift EA.
Umsóknarfrestur er til 26. maí og vinnustofurnar fara fram dagana 11.–26. júní á Akureyri. Sótt er um á vefsíðu Driftar EA, www.driftea.is. Nánari upplýsingar veitir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.