Opið hús heima að Hólum

Í tilefni af fimm ára starfsafmæli Háskólans á Hólum, sem og því að 130 ár eru liðin frá stofnun Bændaskólans á Hólum, er gestum boðið á opið hús heima að Hólum, laugardaginn 1. desember nk., á milli kl. 13 og 15.

Á heimasíðu Hólaskóla segir að gestum verði kynnt starfsemi skólans, bæði í aðalbyggingu hans en einnig með leiðsögn um hesthús. Ýmislegt fleira mun verða í boði, bæði fræðsla og leikir - að ógleymdri léttri hressingu.

Fleiri fréttir