Opið hús hjá ferðaþjónustubændum í dag

Það verður líf og fjör hjá stórum hluta ferðaþjónustubænda um allt land á opnu húsi í dag 10. júní kl. 13.00-17.00 í boði Ferðaþjónustu bænda,  Beint frá býli og Opins landbúnaðar.

Fólki gefst kostur á að fá sér kaffisopa, skoða gistiaðstöðuna, fá nýja bæklinginn "Upp í sveit", spjalla við bændurna og upplifa einstaka stemningu á bæjunum. Það verður mikið um að vera en á ákveðnum bæjum verður til dæmis hægt að fylgjast með mjöltum, skoða fjárhúsin, taka þátt í heimatilbúinni sælgætisgerð, fara á hestbak og gæða sér á heimabakstri.

Þeir bæir sem verða með opið á Norðurlandi vestra eru:

  • Glæsibær í Skagafirði
  • Keldudalur í Hegranesi
  • Sölvanes í Skagafirði
  • Brekkulækur í Miðfirði
  • Neðra-Vatnshorn í Línekrudal
  • Gauksmýri í Húnaþingi
  • Dæli í Víðidal
  • Húnavellir
  • Hof I í Vatnsdal

Nánari upplýsingar um bæina er hægt að nálgast á vef Ferðaþjónustu bænda.

Fleiri fréttir