Opið hús hjá Nes listamiðstöð

Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús næstkomandi föstudag, 23. maí, og eru gestir boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á milli kl. 17 og 19.

Þar verður hægt að hitta þá listamenn hvaðanæva úr heiminum sem dvelja við listamiðstöðina um þessar mundir. Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni.

 

Fleiri fréttir