Opið hús hjá Nes listamiðstöð

Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús nk. mánudag, 26. janúar, og eru gestir boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á milli kl. 16 og 18.

Þar verður hægt að hitta þá listamenn hvaðanæva úr heiminum sem dvelja við listamiðstöðina um þessar mundir. Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni.

Fleiri fréttir