Opið hús í Barnabóli
Fimmtudaginn 12. maí s.l. buðu nemendur og kennarar leikskólans Barnabóls á Skagaströnd í svokallað „opið hús“. Annað hvert vor, árið með oddatölu, er gestum og gangandi boðið formlega að koma í heimsókn, ganga um leikskólann og fylgjast með leik og starfi nemenda og hvernig hefðbundinn leikskóladagur gengur fyrir sig. Skoða verkefni og iðju nemenda og fá innsýn og upplýsingar um metnaðarfullt skólastarf Barnabóls.
Foreldrafélag leikskólans var með kaffisölu á Cafe Barnabóli og einnig með sölu á myndverkum eftir nemendur.
Í ár bauð félagið upp á hoppukastala á leikskólalóðinni sem vakti mikla ánægju. Í blíðskaparveðri iðaði leikskólalóðin af lífi og fjöri. Margir Höfðaskólanemendur komu og léku sér með leikskólanemendum í kastalanum.
Á vef Skagastrandar segir að dagurinn hafi verið skemmtilegur og margir sem litu inn og tóku þátt í honum og eru stjórnendur Barnabóls þakklátir öllum fyrir komuna og að gera daginn ánægjulegan með þeim og börnunum
