Opið hús í Nes Listamiðstöð
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
23.02.2019
kl. 16.29
Á morgun, sunnudaginn 24. febrúar, verður opið hús í Nes listamiðstöð á Skagaströnd milli klukkan 14 og 16. Það gefst gestum færi á að njóta glæsilegra listaverka, myndlistar, kvikmynda, bókmennta og tónlistar sem listamenn, víða að úr heiminum, hafa unnið meðan þeir hafa dvalið í listamiðstöðinni.
Fleiri fréttir
-
Skíðasvæðið í Tindastólnum opnar á morgun
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla 20.02.2026 kl. 13.43 oli@feykir.isÞað hefur verið snjóhallæri í vetur og varla hægt að tala um nokkurn snjó í Tindastólnum og því ekki séns að opna skíðasvæðið. En nú ber svo við að aðstæður hafa verið skíðavinum hagstæðar síðustu vikur, það hefur snjóað og það hefur verið frost. Það stefnir því í hátíð í Stólnum á morgun, laugardag, því þá verður skíðasvæðið opnað gestum,Meira -
Alltaf heillast af hættulegum forvígismönnum / ARNAR EGGERT
Að þessu sinni leitar Tón-lystin hófanna utan þjónustusvæðis og hringir ímyndaðri dyrabjöllu í Stangarholtinu hjá einum sprenglærðasta tónlistargruflara landsins. Það er að sjálfsögðu Arnar Eggert Thoroddsen sem við höfum náð að plata í að svara þættinum. Arnar Eggert er fæddur árið 1974, alinn upp í Kópavogi og Reykjavík, útmenntaður í tónlistarfræðunum frá Edinborgarháskóla og aufúsugestur á öldum ljós-vakans, ekki síst þegar eitthvert tónlistarséníið hrekkur upp af – þá er hringt í Arnar og hann rifjar upp helstu afrek viðkomandi og stöðu innan popp- og rokkkúltúrsins.Meira -
Badmus og Basile í stuði í Þorlákshöfn
Það var enginn glæsibragur yfir leik Stólanna í gærkvöldi þegar þeir lögðu lið Þórs í Þorlákshöfn í hörkuleik. En Badmus og Basile voru í stuði og þeir voru nógu öflugir til að draga Stólarútuna í mark hársbreidd á undan Lalla og lærisveinum hans í liði Þórs. Ekki það að hægt sé að ganga að því vísu að koma heim úr Höfninni með tvo stig og í viðtali eftir leik var Arnar þjálfari vel sáttur við að ná í sigur. Lokatölur voru 95-98.Meira -
Kjötbollur og steiktur fiskur að hætti verkfræðingsins | Matgæðingar Feykis
Þorgeir Sveinsson og Anna Icban sem voru matgæðingar í tbl. 32, 2025, skoruðu á Atla Gunnar og Kristvinu í Álftagerði I að taka við keflinu sem og þau að sjálfsögðu gerðu og birtist í tbl. 34. Það er ekki á allra vitorði, en Atli heldur úti matar- og lífstílsblogginu "Verkfræðingurinn í eldhúsinu", og liggur því beinast við að birta tvær uppskriftir sem hann heldur mikið upp á.Meira -
Addams fjölskyldan kemur sér fyrir á Hvammstanga
Leikflokkur Húnaþings vestra ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en æfingar á söngleiknum Addams family eru hafnar. Stefnt er að fjórum sýningum um páskahelgina sem er í byrjun apríl að þessu sinni. Það er Sigurðar Líndal sem leikstýrir en hann er einnig þýðandi verksins.Meira
