Opið hús í nýjum húsakynnum Samfylkingarfélags A-Hún
Samfylkingarfélag A-Hún. Blönduósi stendur fyrir opnu húsi 5. júní nk. frá kl. 15:oo til 17:oo að Þverbraut 1, Blönduósi. Kaffiveitingar og húnverskar uppákomur af ýmsu tagi. Félagið hefur tekið á leigu skrifstofu og fundaraðstöðu á 2. hæð að Þverbraut 1 sem áður var skrifstofa fræðslustjóra.
Aðalmarkmið með leigu skrifstofunnar er að hafa góða vinnuaðstöðu fyrir bæjarfulltrúa og bæjarmálaráð S-listans og að geta boðið upp á viðtalstíma hjá bæjarfulltrúum S-listans og fl. kjörnum fulltrúum listans. Þá skapast vinnuaðstaða fyrir stjórn og trúnaðarmannaráð Samfylkingarfélagsins á svæðinu og geta þingmenn og ráðherrar Samfylkinginnar einnig nýtt sér þessa aðstöðu, þegar þeir eiga leið um.
Í tilefni af þessum tímamótum og til að fagna 1. árs afmæli kosningasigurs S-listans á Blönduósi verður opið hús á sunnudaginn 5. júní nk. þar sem félagið vonast til að sjá sem flesta.