Opin fundur um vegamál hjá Rótarý
Rótarýklúbbur Sauðárkróks lætur sér fátt óviðkomandi en í kvöld boðar hann til opins fundar kl. 18:00 – 19:00. Fundurinn fer fram á Kaffi Krók, neðri sal. Húsið opnar kl. 17:45.
Sérstakur gestur fundarins er Margrét Silja Þorkelsdóttir (Kela kennara), svæðisstjóri Norðursvæðis Vegagerðarinnar, en hún mun fjalla um vegamál á Norðurlandi vestra.
Allir velkomnir og heitt á könnunni. /hmj
