Opin hönnunarsamkeppni um lógó fyrir „Gæði úr Húnaþingi“

Samstarfshópur um „Gæði úr Húnaþingi“ undir forystu Spes sveitarmarkaðar í Húnaþingi vestra stendur fyrir opinni hönnunarsamkeppni um kennimerki (lógó) og lýsir hér með eftir tillögum. Kennimerkið skal vera einkennandi fyrir framleiðslu sem unnin er að mestu leiti í höndunum og byggir að nokkru leiti á hráefni svæðisins. Hér er aðallega átt við handverk, hönnun og matvælaframleiðslu. Einnig koma þjónustustaðir í ferðaþjónustu að verkefninu. 

Tilgangur með kennimerkinu er að veita viðskiptavinum vísbendingar um uppruna vöru og framleiðsluhætti. Merkið á að nota á vöru, umbúðir, matseðla, bréfsefni, verðmiða o.fl.  Að baki kennimerkis liggja gæðaviðmið sem hver og einn notandi kennimerkis viðurkennir.

„Húnaþing vestra (íbúar eru 1187) er vel þekkt sem handverkshérað. Fjölbreytt gæðahandverk er í boði á fimm stöðum: Grúsku á Borðeyri, Verslunarminjasafninu Bardúsa á Hvammstanga, Handverkshúsinu Langafit á Laugarbakka, Spes sveitarmarkaði á Laugarbakka og í  Leirhúsi Grétu á Litla Ósa. Einnig eru handverksvörur úr Húnaþingi vestra að finna í völdum búðum á Akureyri, í Reykjavík og í Leifsstöðinni í Keflavík, svo að dæmi séu tekin. Brauð, kjötvörur, landnámshænuegg og ostar eru í boði á netinu og/eða í sérverslunum í Reykjavík. Merking þessara afurða með upprunamerki er um leið kynning héraðsins út á við,“ segir í frétt á heimasíðu FNV.

Kennimerkið „Gæði úr Húnaþingi – local quality“ á að endurspegla handverk og matvæli, fegurð og ró, einkenni héraðsins svo sem Hvítserk, seli, ferskir vindar, heiðalönd, vatnsföll o.fl.

Á Facebook síðu FNV er að finna myndir frá Húnaþingi vestra og upplýsingar. Einnig er bent á www.northwest.is til upplýsingaöflunar. Hugmyndum að kennimerki verður ekki endilega að skila full frágengnum.

Öllum áhugasömum er frjálst að taka þátt í samkeppninni. Tillögur skal senda til Spes sveitarmarkaðar, Sýðri Jaðri, 500 Staður, undir dulnefni, og nafn hönnuðar skal fylgja með í lokuðu umslagi. Tillögur á tölvutæku formi skulu vera á JPG, TIF, BMP eða PDF formi og vistaðar á geisladisk.  Tillögur þurfa að hafa borist fyrir 15. mars 2012. Vinsamlegast merkið umslagið með „Gæði lógó“.

Allur tillögurnar verða sýndar opinberlega á viðeigandi stað og sýningin auglýst. Íbúar Húnaþings vestra munu velja verðlaunamerkið úr innsendum tillögum. Verðlaunamerkið (lógóið) verður alfarið eign samstarfsaðilanna að samkeppni lokinni og geta þeir því nýtt sér merkið eða breytt eftir þörfum. Dómnefndin áskilur sér þann rétt að hafna öllum tillögum ef svo ber undir.

Þrenn verðlaun eru í boði. Sú tillaga sem valin verður hlýtur kr. 150.000 í verðlaunafé, næst vinsælasta tillaga hlýtur 90.000 kr. en sú þriðja 40.000 kr.

Frekari upplýsingar veitir Gudrun Kloes hjá SSNV atvinnuþróun, gudrun@ssnv.is, s. 455 2515 eða 898 5154.

Fleiri fréttir