Opinn fundur með félags- og heilbrigðisráðherra á Blönduósi í kvöld
Guðbjartur Hannesson, félags- og heilbrigðisráðherra og Magnús Orri Schram þingmaður verða frummælendur á opnum fundi Samfylkingarinnar í fundarsal Samstöðu á Blönduósi í kvöld þriðjudag 2. nóvember kl. 20.00.
Fundurinn er öllum opinn og góður tími verður gefinn til skoðanaskipta að loknum stuttum ávörpum. Fundurinn er liður í fundaferð Samfylkingarinnar um landið allt sem ber yfirskriftina „Verkefnin framundan“.
Hörður Ríkharðsson stýrir fundinum í kvöld sem hefst kl. 20. í fundarsal Samstöðu. Fundurinn er öllum opinn.

