Opinn fundur um atvinnuuppbygginu í A-Hún
Boðað er til opins fundar fyrir íbúa í Austur-Húnavatnssýslu í Félagsheimilinu á Blönduósi til að ræða atvinnumál í sýslunni og kynna Greinargerð um atvinnuuppbyggingu í Austur - Húnavatnssýslu. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 29. júní kl. 17:30.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
- „Atvinnuuppbygging í Austur – Húnavatnssýslu.“ Greinargerð verkefnisstjórnar A –Hún. – Arnar Þór Sævarsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar.
- Staða byggðaþróunar í Austur-Húnavatnssýslu – Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaður Þróunarsviðs Byggðastofnunar.
- Álver á Hafursstöðum – Ingvar Skúlason frá Klöppum.
- Umræður og tillögur.
Skýrslan er aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna.
Umrædd skýrsla um atvinnuuppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu byggist á þingsályktun Alþingis frá 15. janúar 2014 um átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu til atvinnuuppbyggingar. Þingsályktunin hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á samstilltu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra með nýtingu raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun. Markmiðið með átakinu er að efla samkeppnishæfni svæðisins og undirbúa það fyrir þá uppbyggingu sem fylgir orkunýtingu Blönduvirkjunar og jafnframt vinna að markaðssetningu svæðisins sem iðnaðarkosts, svo sem fyrir gagnaver.“
Á grundvelli ályktunarinnar var skipuð verkefnisstjórn með fulltrúum Sveitarfélaganna fjögurra í Austur-Húnavatnsýslu og atvinnuvega -og nýsköpunarráðuneytis.
Verkefnisstjórnin er þannig skipuð:
Arnar Þór Sævarsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar, formaður verkefnisstjórnar,
Adolf H. Berndsen, oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar,
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, varaoddviti Skagabyggðar,
Sigrún Hauksdóttir, varaoddviti Húnavatnshrepps,
Sveinn Þorgrímsson, yfirverkfræðingur atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneyti